Gerð og skráning húsaleigusamninga
Leiguhúsnæðið og leigutími
Leiguhúsnæðið
Mjög mikilvægt er að skrá nákvæmlega það húsnæði sem leigt er. Annars gætu aðilar átt kröfu í stærri leigueiningu en fyrirhugað er
Fasteignanúmer, fermetrafjöldi og herbergjafjöldi þarf að koma fram ásamt greinargóðri lýsingu á hinu leigða
Nauðsynlegt er að skýra hvort um herbergjaleigu er að ræða eða íbúðaleigu
Sérstakir hópar leigutaka þurfa að koma fram, það er hvort húsnæðið sé ætlað sérstökum hópum svo sem eldra fólki eða námsmönnum
Leigutími
Leigusamningar geta verið tímabundnir eða ótímabundnir
Tímabundnir samningar renna sitt skeið á enda án sérstakra uppsagna, nema um annað sé samið
Einungis er hægt að segja upp ótímabundnum samningi með því að gefa upp ástæður uppsagnarinnar (á við um samninga sem gerðir voru 1. september 2024 og síðar)
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun