Til að stuðla að öryggi skemmtibáta, hvað varðar haffærni þeirra, búnað og siglingu, ber að gæta að ýmsum skilyrðum sem gilda um notkun þeirra og fleira.
Skemmtibátur er bátur sem er ætlaður til íþrótta og tómstunda, óháð knúningsmáta. Með bollengd frá 2,5 m til 24 m og allar sæþotur styttri en 4 m. Ekki skiptir máli þótt sama bát megi nota í atvinnuskyni, sé hann settur á markað (þ.e. fluttur inn og/eða tekinn í notkun sem skemmtibátur).
Samgöngustofa hefur gefið út kynningarbækling um skemmtibáta. Þar má sjá yfirlit yfir helstu skyldur skemmtibátaeigenda, farið yfir þær reglur sem gilda um innflutning, skráningu, björgunar- og öryggisbúnað, skoðun og eftirlit og skipstjórnarréttindi á skemmtibáta.
Hér má nálgast Spurningar og svör vegna skipstjórnarréttinda á skemmtibáta.
Spurt og svarað um skemmtibáta
CE-merking vísar til þess að framleiðsla sé í samræmi við ESB-reglur. Allir skemmtibátar verða að vera CE-merktir áður en þeir eru settir á markað eða teknir í notkun innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Bátur sem keyptur eru notaður frá landi utan EES er að öllum líkindum ekki CE-merktur, þar sem CE-merki eru hluti af kerfi sem notað er innan ESB/EES.
Skoða þarf hvern einstakan bát til þess að komast að því hvort hann er CE-merktur.
Sá sem flytur inn skemmtibát sem ekki er með CE-merki, er ábyrgur fyrir því að hann verði merktur á réttan hátt.
Samgöngustofa CE-merkir ekki báta, en sem eftirlitsaðili fylgist stofnunin með því að bátar séu framleiddir í samræmi við gildandi reglur. Áður en bátur er tollafgreiddur verður Samgöngustofa að staðfesta að hann sé CE-merktur og uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til slíkra báta.
Fá þarf tilkynntan aðila til þess að taka út bátinn.
Nei, skemmtibáturinn verður að vera CE-merktur þegar hann er fluttur inn eða tekinn í notkun á EES-svæðinu.
Það getur verið mjög kostnaðarsamt, en er þó misjafnt eftir bátum og þeim tækniskjölum sem með honum fylgja.
Skemmtibátar sem ekki eru CE-merktir verða stoppaðir í tolli. Eigandi bátsins getur þá valið um hvort hann lætur CE-merkja hann eða flytja hann út fyrir Evrópska efnahagssvæðið.
Að framkvæma CE-merkingu á skemmtibát getur verið mjög flókið og þarf liðsinni tilkynnts aðila við merkinguna. Til að mynda þarf að leggja fram fullnægjandi tæknileg skjöl fyrir bátinn, handbók eiganda og samræmisyfirlýsingu þess sem setur skemmtibátinn á markað innan EES (t.d. með innflutningi hans). Þar eiga að koma fram upplýsingar um samræmi bátsins við kröfur skemmtibátareglugerðarinnar, nýtt auðkennisplötu- og kenninúmer (HIN).
Í reglugerð um hönnun og framleiðslu skemmtibáta og einmenningsfara nr. 130/2016 – 6.gr. Auk þess eru í kafla H í RSG – leiðbeiningunum (The Recreational Craft Sectoral Group) frekari upplýsingar um kröfur til tækniskjala.