Fara beint í efnið

Endurnýjun dvalarleyfis

Endurnýja dvalarleyfi

Trygg framfærsla

Umsækjandi verður að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að dveljast hér á landi. Trygg framfærsla þýðir að hann hafi næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfur. Sýna þarf fram á framfærslu í gjaldmiðli sem er skráður hjá Seðlabanka íslands.

Útlendingastofnun er heimilt að afla skattframtala og gagna frá skattyfirvöldum til staðfestingar á tryggri framfærslu.

Upphæð framfærslu

Útlendingastofnun miðar við að mánaðarleg fjárráð umsækjenda séu að lágmarki:

  • 247.572 krónur fyrir einstaklinga.

  • 396.115 krónur fyrir hjón.

  • 123.786 krónur til viðbótar vegna fjölskyldumeðlims 18 og eldri.

Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar, sjá reglur um fjárhagsaðstoð. Upphæðir miðast við tekjur fyrir skatt.

Tímabil

Framfærsla útlendings þarf að vera trygg á gildistíma dvalarleyfis. Það þýðir að verði dvalarleyfi gefið út til eins árs þarf að sýna fram á trygga framfærslu fyrir eitt ár.

Undanþágur frá skilyrði um trygga framfærslu

Ef framfærsla hefur verið ótrygg um stuttan tíma er heimilt að víkja frá skilyrðinu um trygga framfærslu. Til dæmis vegna atvinnuleysis, slyss eða veikinda eða vegna sambærilegra ástæðna, svo sem ef umsækjandi hefur fengið félagsaðstoð í nokkra mánuði eða hlotið fæðingarstyrk, og eins ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því. Útlendingastofnun metur hvort undanþága vegna framfærslu er veitt.

Óski umsækjandi eftir undanþágu frá skilyrði um framfærslu þarf að leggja fram greinargerð með umsókn og gögn til stuðnings beiðni, til dæmis læknisvottorð.

Athugið að þessi undanþága er einungis veitt við endurnýjun dvalarleyfis, ekki þegar sótt er um dvalarleyfi í fyrsta skipti.

Skilyrðið um trygga framfærslu á ekki við um umsækjendur með dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þeir þurfa ekki að sýna fram á framfærslu og hefur félagsleg aðstoð engin áhrif á umsókn þeirra.

Undanþágur frá skilyrðinu um sjálfstæða framfærslu

Allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa að sýna fram á sjálfstæða framfærslu, nema í eftirfarandi undantekningartilvikum:

  • Fyrir barn, yngra en 18 ára, sem er á framfæri foreldris eða forsjáraðila sem búsettur er hérlendis, þarf ekki að sýna fram á sjálfstæða framfærslu.

  • Fyrir einstakling eldri en 18 ára,

    • sem hefur haft samfellt dvalarleyfi hér á landi frá því hann var barn,

    • stundar nám eða störf hér á landi,

    • býr hjá foreldri og

    • er hvorki í hjúskap né sambúð

    er framfærsluviðmið 50% af lágmarksframfærslu einstaklings, það er 123.786 krónur á mánuði, til viðbótar við þá framfærslu sem foreldri eða forsjáraðili þarf að sýna fram á fyrir sjálfan sig og aðra fjölskyldumeðlimi.

    • Umsækjandi þarf að sýna fram á sjálfstæða framfærslu ef hann stundar vinnu og er ekki í námi. Umsækjanda sem er í námi er heimilt að vera á framfæri foreldris.

  • Maki Íslendings eða erlends ríkisborgara þarf ekki að sýna fram á sjálfstæða framfærslu. Vegna framfærsluskyldu á milli hjóna samkvæmt hjúskaparlögum er nægjanlegt að annar aðili í hjúskap sýni fram á næga framfærslu fyrir báða.

    • Athugið að sambúð er ekki jafngild hjúskap að þessu leyti. Ekki er framfærsluskylda á milli sambúðarfólks og þarf umsækjandi því að sýna fram á sjálfstæða framfærslu sé hann í sambúð.

  • Foreldri 67 ára eða eldra sem er á framfæri barns eða barna sinna hér á landi þarf ekki að sýna fram á fulla sjálfstæða framfærslu. Fyrir það er framfærsluviðmið 50% af lágmarksframfærslu einstaklings, það er 123.786 krónur á mánuði, til viðbótar við framfærslu annara fullorðinna einstaklinga á heimilinu.

Hvernig er sýnt fram á trygga framfærslu

Framfærsla getur stuðst við fleiri en einn þátt, til dæmis bæði launatekjur og eigið fé eins og bankareikninga.

Launatekjur eða tekjur af sjálfstæðri atvinnustarfsemi

Umsækjandi sýnir fram á launatekjur með því að leggja fram staðgreiðsluyfirlit eða útgefna reikninga stimplaða af skattyfirvöldum. Umsækjandi getur einnig lagt fram frumrit ráðningarsamnings.

Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram fyrrgreind gögn þess einstaklings.

Launaseðlar síðustu þriggja mánaða

Útprentun úr heimabanka er fullnægjandi, annars þarf staðfestingu vinnuveitanda.

Staðgreiðsla verður að hafa verið greidd af launum. Útlendingastofnun kannar í staðgreiðsluskrá hvort staðgreiðsla hafi verið greidd.

Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram launaseðla þess einstaklings.

Tryggar reglulegar greiðslur til framfærslu

Slíkar greiðslur geta meðal annars verið greiðslur frá Tryggingastofnun vegna örorku, atvinnuleysisbætur, leigutekjur og styrkir sem umsækjandi fær, til dæmis vegna rannsókna. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða á þeim greiðslum sem hér geta átt við.

Eigið fé

Bankayfirlit sem sýnir fjárhæð inneignar á bankareikningi umsækjanda, hérlendis eða erlendis. Fjárhæðin þarfa að vera í gjaldmiðli sem er alþjóðlega viðurkenndur og hægt að skipta í mynt sem er skráð hjá Seðlabanka Íslands og hægt er að taka út og nýta til framfærslu.

Yfirlitið þarf að vera staðfest af bankanum sjálfum og í frumriti. Útprentun reikningsyfirlits úr heimabanka er ekki fullnægjandi staðfesting.

Upplýsingar um skráningu gjaldmiðla er að finna hjá Seðlabanka Íslands.
Ef umsækjandi er á framfæri annars einstaklings er heimilt að leggja fram bankayfirlit þess einstaklings.

Eftirfarandi telst ekki fullnægjandi framfærsla

  • Greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags eru ekki trygg framfærsla.

  • Framfærsla þriðja aðila, í öðrum tilvikum en fram kemur framar í þessari umfjöllun, er ekki trygg framfærsla.

  • Eignir aðrar en bankainnistæður teljast ekki trygg framfærsla (til dæmis fasteignir).

  • Arður af fyrirtækjum, vextir eða aðrar greiðslur sem ekki er tryggt hvort eða hvenær eru lausar til útborgunar teljast ekki trygg framfærsla.

Endurnýja dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun