Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Beiðni um skoðun á vinnuvél

Beiðni um skoðun á tæki

Allar vinnuvélar þarf að skoða:

  • árlega - sjá skoðunarmiða á vél eða á mínum síðum

  • fyrir og eftir verulegar viðgerðir og breytingar á burðarvirkjum véla

Það er á ábyrgð eigenda að gæta þess að allar vélar séu skoðaðar og biðja um skoðun í tíma. Vinnuvélar eru hluti af vinnuumhverfinu hjá mörgum atvinnurekendum og ber þeim því að gæta að öryggi vélanna í því skyni að tryggja öryggi starfsfólks.

Skoðunarferli

Hægt er að senda inn beiðni um skoðun með því að smella á hnappinn "Sækja um" hér að ofan.

Eftirlitsmaður Vinnueftirlitsins hefur samband innan þriggja virkra daga.

Skoðun á vinnustað

Eftirlitsmaður mætir á vinnustað og skoðar vélina. Niðurstaðan getur verið ýmist:

  • Full skoðun: Nýr skoðunarmiði settur á.

  • Hálf skoðun: Gera þarf úrbætur en tækið má nota á meðan. Panta þarf aukaskoðun að úrbótum loknum.

  • Notkun bönnuð: Tækið má ekki nota fyrr en úrbætur hafa verið gerðar. Settur er rauður miði á tækið á meðan. Panta þarf tíma í aukaskoðun að úrbótum loknum.

Skoðunarskýrsla berst í tölvupósti á uppgefið netfang. Hún verður svo aðgengileg á Ísland.is daginn eftir skoðun.

Kostnaður

Reglubundin skoðun

Skoðunarkostnaður fer eftir tegund vinnuvélar.

Innheimt er um mánaðarmót með greiðsluseðli frá Fjársýslunni.

Aukaskoðun

Greitt er 75% af skoðunargjaldi ef aukaskoðunin er vegna:

  • vanbúnaðar sem kemur í ljós við reglubundna skoðun

  • vanrækslu

Greitt er 50% af skoðunargjaldi ef aukaskoðunin er vegna:

  • uppsetningar véla, tækja eða annars búnaðar sem er með gilda reglubundna skoðun til dæmis byggingakrana eða hengiverkpalla

  • breytinga eða viðgerða

Beiðni um skoðun á tæki

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Beiðni um skoðun á tæki