Ástarsvik
Tapaður peningur eða tilraun til kúgunar
1. Láttu banka eða fjármálaþjónustu vita
Hafðu strax samband við bankann þinn ef þú hefur greitt viðkomandi pening. Starfsfólk hjá öllum bönkum hefur reynslu og skilning á málinu og getur leiðbeint þér.
2. Tilkynna til lögreglu
Tilkynntu málið til lögreglunnar. Í tilkynningunni er beðið um að gefa lögreglunni leyfi til að rannsaka málið hjá bankanum. Það er mikilvægt til að hjálpa við rannsókn málsins. Þú getur tilkynnt hér eða á næstu lögreglustöð.
Þótt það sé freistandi að blokka viðkomandi er betra að gera það ekki strax til þess að geta veitt lögreglunni allar upplýsingar um samskiptin. Best er að hætta bara að svara. Lestu meira um einkenni og ráð gegn ástarsvikum.
Þjónustuaðili
Lögreglan