Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ástarsvik

Grunur um ástarsvik

Ef þig grunar að sá sem þú ert að tala við sé ekki sá sem hann segist vera eða ef hann er farinn að biðja þig um pening, þá er einfaldast að hindra að hann geti haft frekari samskipti við þig. Þú getur blokkað fólk á öllum miðlum og tilkynnt (e. report) prófílinn þeirra. Kynntu þér betur einkenni og ráð gegn ástarsvikum.

Það er mikilvægt að huga að andlegri heilsu þinni og tala við fjölskyldu og vini eða jafnvel leita þér hjálpar hjá fagaðila, eins og Bjarkarhlíð. Þótt þú hafir ekki tapað peningum er best að láta lögregluna vita. Lögreglan nýtir sér upplýsingarnar til að vara fólk við eða stíga inn í.

Ábending um netsvik

Þjónustuaðili

Lögreglan