Ástarsvik
Ástarsvikarar reyna að öðlast traust fólks til að stela af því peningum eða persónuupplýsingum og geta verið mjög sannfærandi. Það er engin ástæða til þess að skammast sín fyrir að hafa lent í svikum á netinu. Ekki hika við að leita þér hjálpar hjá bönkum, lögreglu, aðstandendum eða hjá fagaðila, eins og Bjarkarhlíð.
Ef þig grunar að manneskjan sem þú ert að tala við sé svikari er best að stöðva öll samskipti. Lestu meira um einkenni og ráð gegn ástarsvikum.
Þjónustuaðili
Lögreglan