Fara beint í efnið

Þarf að vera búið að semja um forsjá svo hægt sé að gefa út skilnaðarleyfi?

Já, til þess að sýslumaður geti gefið út skilnaðarleyfi eða staðfestingu vegna sambúðarslita, þurfa foreldrar meðal annars að ákveða hvernig forsjá barna þeirra skuli háttað.

Liggi fyrir samkomulag foreldra um forsjá og aðra þætti sem semja þarf um við skilnað og sambúðarslit, gefur sýslumaður út leyfi til skilnaðar eða staðfestir samkomulag foreldra um forsjá, lögheimili og meðlag vegna sambúðarslita.

Hér má finna nánari upplýsingar um forsjá við skilnað og sambúðarslit. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?