Fara beint í efnið

Hvað er könnunarvottorð?

Áður en tveir einstaklingar eru gefnir saman í hjónaband þarf að fara fram könnun á því hvort skilyrði til hjónavígslu séu uppfyllt. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum annast könnun hjónavígsluskilyrða á landsvísu.

Hjónavígsla getur farið fram innan 30 daga frá útgáfu könnunarvottorðs.

Könnunarvottorð kostar 4.800 krónur.

Hér má sjá nánari upplýsingar um hjónaband og könnunarvottorð. 




Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?