Fara beint í efnið

Hvernig er eignum skipt við sambúðarslit?

Fjárskiptin eru ekki til umfjöllunar í viðtali hjá sýslumanni vegna sambúðarslita. Ekki gilda skráðar lagareglur um þá skiptingu en reynt hefur á slík skipti í dómum. Ef ágreiningur rís er aðilum bent á að leita aðstoðar lögmanns. Hægt er að fara fram á opinber skipti til fjárslita vegna óvígðrar sambúðar, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Hér má finna nánari upplýsingar um sambúðarslit. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?