Fara beint í efnið

Hvernig get ég undirbúið mig fyrir sáttameðferðarviðtal?

Til umhugsunar fyrir foreldra sem eru að hefja sáttameðferð:

  • Hvernig eru samskipti okkar foreldranna? Hvað get ég gert til að bæta þau?

  • Hvað gengur vel? Hvað gæti gengið betur?

  • Hef ég heyrt viðhorf hins foreldrisins og tekið sanngjarna afstöðu til þess?

  • Hvað vill barnið? Hvernig líður því og hvað get ég gert til að því líði betur?

  • Hvernig stuðla ég að góðum tengslum barnsins við hitt foreldrið? 

  • Hvernig tala ég um hitt foreldrið fyrir framan barnið?

  • Hvað vil ég að ávinnist í sáttameðferðinni? 

  • Hef ég skýrar tillögur? 

  • Hvað tel ég viðunandi niðurstöðu?

Hér má finna nánari upplýsingar um sáttameðferð í ágreiningsmálum vegna barna og hér má finna bækling um sáttameðferð á nokkrum tungumálum. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?