Fara beint í efnið

Hver eru áhrif lögheimilisskráningar barns?

Skráning hefur meðal annars áhrif á:

  • Margvísleg áhrif fylgja skráningu lögheimilis hjá foreldri og mikilvægt að kynna sér vel þær reglur áður en samningur um lögheimili er gerður. Skráning lögheimilis hefur meðal annars eftirfarandi áhrif:

  • Lögheimilisforeldri getur farið fram á meðlag frá umgengnisforeldri.

  • Lögheimilisforeldri getur farið fram á sérstakt framlag til framfærslu frá umgengnisforeldri.

  • Barnabætur eru almennt greiddar til þess foreldris sem barn á lögheimili hjá við árslok.

  • Lögheimilisforeldri hefur heimild til að taka afgerandi ákvarðanir um daglegt líf barnsins s.s. um val á leikskóla, grunnskóla, daggæslu, heilsugæslu og tómstundastarf. Foreldrar sem fara saman með forsjá barns skulu þó ávallt leitast við að hafa samráð um málefni barnsins.

  • Lögheimilisforeldri getur ákveðið að flytja lögheimili sitt innanlands, og þar með lögheimili barnsins, án þess að afla samþykkis umgengnisforeldris.

  • Barnið á rétt til þjónustu frá sveitarfélaginu þar sem það á lögheimili t.d. leikskóli, grunnskóli og félagsþjónusta.

  • Opinber stuðningur eða réttur til þjónustu eða aðstoðar, kann að ráðast af lögheimili barns.
    Samþykki beggja foreldra með sameiginlega forsjá þarf til þess að barn fari til útlanda.

Hér má finna nánari upplýsingar um lögheimili barns



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?