Aðgangur að gögnum til vísindarannsókna
Fjölmörg gagnasöfn eru haldin hjá embætti landlæknis, ýmist á ábyrgð landlæknis eða sóttvarnalæknis. Er það í samræmi við ákvæði í lögum um landlækni og lýðheilsu og sóttvarnalög.
Um er að ræða:
Heilbrigðisskrár, sem eru gagnagrunnar með gögnum um starfsemi heilbrigðisþjónustunnar, sjúkdóma, lyfjanotkun, fæðingar, dánarmein, bólusetningar og fleira.
Gagnasöfn sem orðið hafa til vegna spurningakannana sem embættið hefur staðið fyrir eða tekið þátt í.
Skrá yfir löggiltar heilbrigðisstéttir og skrá yfir rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu.
Á sérstakri síðu á vef embættisins er að finna yfirlit yfir þessi gagnasöfn og breytulista.
Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu er tilgangur þess að halda heilbrigðisskrár meðal annars sá að nýta gögnin til vísindarannsókna og samkvæmt sóttvarnalögum skulu skrár á ábyrgð sóttvarnalæknis nýtast til faraldsfræðirannsókna.
Til þess að sækja um gögn skal fylla út rafrænt umsóknareyðublað og senda ásamt þeim fylgiskjölum sem við eiga og tilgreind eru á umsóknareyðublaðinu. Ef um er að ræða nemaverkefni skal leiðbeinandi, sem ábyrgðarmaður rannsóknar, fylla út umsóknina.
Rannsóknagagnanefnd
Innan embættis landlæknis er starfandi rannsóknagagnanefnd sem fer yfir allar umsóknir um gögn. Nefndin hittist að öllu jöfnu vikulega.
Gjaldtaka
Embættið áskilur sér rétt til gjaldtöku vegna gagnavinnslu, í samræmi við Reglugerð um gjaldtöku embættis landlæknis fyrir úttektir og staðfestingar á að faglegar lágmarkskröfur séu uppfylltar og úrvinnslu og afhendingu upplýsinga úr heilbrigðisskrám.
Frekari upplýsingar
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis