Ábendingar um starfsemi í ökunámi
Ein af leiðum Samgöngustofu til að sinna eftirliti með ökunámi er að taka við ábendingum um starfshætti eftirlitsskyldra aðila.
Samgöngustofa hefur eftirlit með því að starfsemi ökukennara, ökuskóla, ökugerða og prófdómara fari fram í samræmi við lög, reglugerð og námskrár. Ein af leiðum Samgöngustofu til að sinna framangreindu eftirlitshlutverki með ökunámi er að taka við ábendingum um starfshætti eftirlitsskyldra aðila.
Ábendingar um starfsemi eftirlitsskyldra aðila í ökunámi veita Samgöngustofu mikilvægar upplýsingar og eru þær því afar vel þegnar.
Sendu okkur ábendingu
Samgöngustofa hefur það að markmiði að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi allra persónuupplýsinga við meðhöndlun mála.
Nánar
Nánari upplýsingar um eftirlit Samgöngustofu og starfsemi eftirlitsskyldra aðila í ökunámi:
Þjónustuaðili
Samgöngustofa