Vélstjórnarnám
Til að fá útgefið vélstjórnarskírteini samkvæmt lögum um áhafnir skipa þarf umsækjandi að hafa fullnægt skilyrðum reglugerðar nr. 944/2020 varðandi aldur, menntun, siglingatíma og heilbrigði.
Vélstjórnarnám stendur til boða í eftirfarandi skólum sem starfa skv. lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008:
Tækniskólinn - vélstjórnarbraut A-D (kjarnaskóli)
Verkmenntaskólinn á Akureyri - vélstjórnarbraut A-D
Fjölbrautaskóli Suðurnesja - Vélstjórnarbraut.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu - vélstjórnarbraut A og B
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum - vélstjórnarbraut A og vélstjórnarbraut B.
Verkmenntaskóli Austurlands - vélstjórnarbraut B
Menntaskólinn á Ísafirði - vélstjórnarbraut A og vélstjórnarbraut B
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sauðárkróki - vélstjórnarbraut A og vélstjórnarbraut B

Þjónustuaðili
Samgöngustofa