Veiðivottorð
Veiði- og vinnsluvottorð til landa innan Evrópusambandsins
Eru einungis gefin út fyrir afla íslenskra skipa.
Eru á stöðluðu formi útbúnu af ESB og þeim er ekki hægt að breyta.
Eru send stafrænt frá kerfi Fiskistofu inn í kerfi ESB, CATCH.
Íslenskir útflytjendur þurfa því ekki að skrá sig, né neinar aðrar upplýsingar í TRACES/CATCH kerfi ESB.
Séu gerð mistök við innslátt upplýsinga er hægt að leiðrétta vottorðið.
Veiðivottorð
Tengja þarf vöru og fisktegund við löndun.
Vörur á veiðivottorðum fara í tollflokk fyrir óunninn fisk/hrávöru og notaðir eru fyrstu 6 stafir tollflokksins.
Athugið að komi vörur frá vinnsluskipi fara þær í viðeigandi flokk út frá vinnslu vörunnar.
Sé um unnar fiskafurðir að ræða þarf að útbúa vinnsluvottorð samhliða veiðivottorðinu.
Vinnsluvottorð
Vinnsluvottorð verður til samhliða veiðivottorði í veiðivottorðakerfinu.
Á vinnsluvottorð þarf að skrá eftirfarandi upplýsingar:
8 stafa tollflokk út frá vinnslu vörunnar
nettóþyngd vöru: þar er þyngd útfluttrar vöru skráð
unnið magn: þar er magn hrávöru skráð sem notað var til að framleiða útfluttu vöruna
fiskvinnsluna sem vann afurðirnar.
Athugið
Útflytjendur og vinnsluaðilar fiskafurða eru beðnir um að skrá ekkert sjálfir inn í TRACES kerfi ESB til skráningu upplýsinga varðandi útgáfu veiði og vinnsluvottorða.
Skráning getur leitt til villu sem leiðir til höfnunar veiði- eða vinnsluvottorðs.

Þjónustuaðili
Fiskistofa