Fara beint í efnið

Innflutningur á geislavirkum efnum er háður leyfi Geislavarna ríkisins.

Ekki þarf leyfi vegna geislavirkra efna undir undanþágumörkum.

Leyfi til innflutnings er ekki gefið nema fyrir liggi leyfi til notkunar eða umsókn um leyfi til notkunar sé hafin.

Leyfisgjöld eru innheimt samkvæmt gjaldskrá.

Umsóknarferli

Flutningsmiðlun eða notandi geislavirks efnis sækir um leyfi til innflutnings.

Skilyrði og fylgigögn

Fyrir leyfi til innflutning þarf:

  • leyfi til notkunar, eða sótt hafi verið um leyfi

  • hvaða flutningsmiðlun sér um innflutning

  • nákvæmar upplýsingar um efnið

  • staðfesting frá framleiðanda um að hann taki á móti geislavirka efninu að notkun lokinni

Umsókn

Til þess að fylla út umsókn þarft þú að hafa tiltækar upplýsingar um:

  • flutningsmiðlun, nafn fyrirtækis og nafn og netfang tengiliðar

  • notanda geislavirka efnis, nafn fyrirtækis og nafn og netfang tengiliðar

  • upplýsingar um efnið: kjarntegund, virkni, umbúðir efnis og fyrirhuguð notkun

  • upplýsingar um tæki sem geislavirka efnið er í ef við á

  • upplýsingar um ábyrgðarmann, nafn, kennitala, netfang og menntun eða stöðu

Vinnslutími umsóknar

Vænta má þess að leyfi sé gefið út innan tveggja vikna frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist stofnuninni. Oft þarf að kalla eftir viðbótargögnum og er það gert með tölvupósti til þess sem sendir umsókn.

Þjónustuaðili

Geislavarnir ríkisins

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169