Sviðslistasjóður
Hlutverk sviðslistasjóðs er að efla íslenskar sviðslistir og standa straum af öðrum verkefnum sem falla undir hlutverk og starfsemi á sviði sviðslista með úthlutun fjár úr sjóðnum til atvinnuleikhópa.
Styrkjafærslur Sviðslistasjóðs
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna atvinnusviðslistahópa. Umsókn í sviðslistasjóð getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef tilgreint í umsóknarformi.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Rannís hefur umsjón með sviðslistasjóði fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Sjóðurinn starfar á grundvelli laga um sviðslistir.
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu sviðslistasjodur@rannis.is eða í síma 515 5839 og 515 5838.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands