Fara beint í efnið

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Áætlað næst í ágúst 2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Verkefnastyrkir Sviðslistasjóðs

Sjóðurinn styrkir íslenskar sviðslistir og önnur sviðslistaverkefni með úthlutunum til atvinnuleikhópa.

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Áætlað næst í ágúst 2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir

Tegund

Fjármögnun

Verkefnastyrkir Sviðslistasjóðs

Lokað fyrir umsóknir / Áætlað næst í ágúst 2026

Umsækjendur eru hvattir til að skila ekki umsókn á síðasta degi.

Markmiðið er að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði.

Veittir eru styrkir til einstakra verkefna atvinnusviðslistahópa. Umsókn í sviðslistasjóð getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef tilgreint í umsóknarformi. Sviðslistaráð úthlutar styrkjum til stuðnings atvinnusviðslistahópum

Hverjir geta sótt um?

  • Atvinnusviðslistahópar.

  • Aðrir lögaðilar (t.d. framleiðslufyrirtæki) geta sótt um fyrir atvinnusviðslistahópa.

Hvernig er sótt um?

Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís), sjá leiðbeiningar. Aðeins er tekið við umsóknum og fylgiskjölum gegnum umsóknarkerfið.

Ferilskrár þátttakenda eiga að fylgja umsókn, teknar saman í eitt PDF skjal eða vísa til þeirra í tenglum.

Önnur gögn til stuðnings umsókn gætu verið staðfestingar frá samstarfsaðilum, handrit og annað slíkt.

Ekki er tekið við fylgigögnum eftir umsóknarfrest, hvort sem þau eru ný eða leiðrétt.

Á síðu 4.3 í umsókn Sviðslistasjóð er hægt að sækja um í launasjóð sviðslistafólks. Umsótt listamannalaun skerða ekki umsótta upphæð úr sviðslistasjóði (nýtt) en ef þeim er úthlutað lækkar möguleg hámarksúthlutun úr sviðslistasjóði sem þeim nemur.

Umsókn má vera á íslensku og ensku.

Svör við spurningum

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu svidslistasjodur@rannis.is eða í síma 515 5839 og 515 5838.

Umsækjendur eru hvattir til að skila ekki umsókn á síðasta degi.

Ekki er tekið við fylgigögnum eftir umsóknarfrest, hvort sem þau eru ný eða leiðrétt.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands