Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Opið fyrir umsóknir í Sviðslistasjóð 2027

5. ágúst 2026

Sviðslistaráð auglýsir eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. október 2026, kl. 15:00.

Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað.

Tímalengd verkefna getur verið allt að 30 mánuðir og miðast við leikárið 2027-2028 og/eða 2028-2029.

Hægt er að sækja um í Launasjóð sviðslistafólks vegna launakostnaðar verkefnis leikárið 2027-2028. Umsótt listamannalaun eru hluti af umsóttri upphæð í Sviðslistasjóð en ekki viðbót. Stuðningur vegna launa getur komið úr Sviðslitasjóði og/eða launasjóði.

Á vef Sviðslistasjóðs er vísun í umsóknar- og skýrsluform, matskvarða, lög, reglur og leiðbeiningar um gerð umsókna.

Vefsíða Sviðslistasjóðs

Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00.

Umsækjendur eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.

Niðurstaða umsókna liggur að jafnaði fyrir í byrjun árs.

Fyrirspurnir: svidslistasjodur@rannis.is eða í síma 515 5839 / 515 5838