Sjóður
Tækniþróunarsjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 15. september 2025
Umsóknartímabil
05.08.2025 - 15.09.2025
Styrkjaflokkun
Nýsköpun, Rannsóknir, Innlent
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Fyrirtækjastyrkur Sproti
Styrkur til ungra nýsköpunarfyrirtækja og frumkvöðla til að styðja við verkefni á byrjunarstigi. Umsóknum er skilað í tveimur þrepum.
Sjóður
Tækniþróunarsjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 15. september 2025
Umsóknartímabil
05.08.2025 - 15.09.2025
Styrkjaflokkun
Nýsköpun, Rannsóknir, Innlent
Tegund
Fjármögnun
Fyrirtækjastyrkur Sproti
Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 15. september 2025
Umsóknir eiga sér stað í tveimur þrepum, dagsetningar eiga við um fyrra þrep
Sproti er fyrirtækjastyrkur ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
Styrkur getur numið allt að 20 milljónum króna samanlagt á tveimur árum, þó ekki meira en 10 milljónum króna á hvoru ári.
Ekki er gerð krafa um mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.
Hámarks lengd verkefnis er 2 ár.
Hverjir geta sótt um?
Ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðlar.
Hvernig er sótt um?
Umsóknir eiga sér stað í tveimur þrepum og nauðsynlegt er að hafa fengið góða einkunn á fyrra þrepi til að geta skilað fullbúinni umsókn á seinna þrepi.
Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Skila þarf verkefnislýsingu á fyrra þrepi og með því að stofna umsókn í umsóknarkerfinu er hægt að fá þar sniðmát til að fylla út í.
Aðeins þær umsóknir sem fá A1 eða A2 í einkunn á fyrra þrepi eiga kost á að skila fullbúinni umsókn á seinna þrepi.
Svör við spurningum
Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs: taeknithrounarsjodur@rannis.is
Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga milli kl. 10-12 í síma 515 5800
Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minni háttar aðstoð, sjá reglur Tækniþróunarsjóðs.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar og reglur Tækniþróunarsjóðs
Um matsferli og skýrsluskil hjá Tækniþróunarsjóði
Leiðbeiningamyndband um Sprota á upplýsingasíðum Tækniþróunarsjóðs.
Í boði er hjálparskjal til að auðvelda gerð kostnaðaráætlunar. Skjalið sem slíkt er ekki sent inn með umsókn, en tölur úr því þarf að skrá á viðeigandi staði í umsókn á seinna þrepi (liðir 3.2 og 3.3). Umsækjendur sem ekki hafa aðgang að Microsoft Office geta opnað skjalið í OneDrive.
Þjónustuaðili