Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 16. febrúar.

Umsóknartímabil

01.01.2026 - 16.02.2026

Styrkjaflokkun

Nýsköpun, Rannsóknir, Innlent

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Hagnýt rannsóknarverkefni

Öflun nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjungar eða endurbætur tengdar vörum, verkferlum eða þjónustu.

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 16. febrúar.

Umsóknartímabil

01.01.2026 - 16.02.2026

Styrkjaflokkun

Nýsköpun, Rannsóknir, Innlent

Tegund

Fjármögnun

Hagnýt rannsóknarverkefni

Opið fyrir umsóknir / Frestur til 16. febrúar.

  • Hagnýt rannsóknarverkefni hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu.

  • Verkefni skulu hafa skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu niðurstaðna.

  • Hægt er að sækja um styrk að hámarki til þriggja ára.

  • Allt að 54 milljónum króna samanlagt á þremur árum, þó ekki meira en 36 milljónum króna á tveimur árum eða 18 milljónum króna á einu ári.

Verkefni sem hljóta framlög skulu fela í sér einn eða fleiri af eftirfarandi þáttum:

  • Skilgreinda hugmynd um hagnýtt gildi og líklegan áætlaðan ávinning af rannsóknar- og þróunarstarfi.

  • Hagnýtar rannsóknir sem miða að nýrri eða endurbættri afurða, þjónustu eða framleiðsluferla.

  • Smíði tæknilegra frumgerða til þess að prófa og endurbæta tæknilega eiginleika.

Hverjir geta sótt um?

  • Aðalumsækjandi getur eingöngu verið háskóli, opinber rannsóknastofnun eða opinbert hlutafélag.

  • Meðumsækjendur í verkefninu geta verið fyrirtæki, háskólar, rannsóknastofnanir, opinber fyrirtæki og einstaklingar.

  • Sjá kröfur um mótframlag umsækjenda í reglum.

  • Styrkþegar þurfa að vera íslenskir lögaðilar.

Hvernig er sótt um?

Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Með umsókn þarf að fylgja verkefnislýsing, unnin í fylgiskjali sem má finna í umsóknarkerfinu.

Leyfilegt er að skila inn öðrum fylgigögnum með umsókninni og umsækjendum gefst kostur á að kynna hugmyndina með stuttu myndbandi (ekki lengara en 5 mínútur).

Sjá nánar í reglum.

Svör við spurningum

  • Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs: taeknithrounarsjodur@rannis.is

  • Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga milli kl. 10-12 í síma 515 5800

  • Til og með 12. febrúar 2026: er viðvera starfsfólks Tækniþróunarsjóðs í Grósku:
    Þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 10-14:30, í fundarherberginu Engjarós og er ekki þörf á að bóka tíma áður (e. walk-in).

Sjá nánar:

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands