Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli

Undirritunardagur

3. júlí 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 778/2026

3. júlí 2026

REGLUGERÐ

um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1378/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1305 frá 11. júní 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 19/2026.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 3. júlí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál