Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

3. júlí 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 19/2026

3. júlí 2026

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlaðist gildi hér á landi með reglugerð nr. 778/2026 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1378/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1305 frá 11. júní 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 3. júlí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

C deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál