Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

23. febrúar 2026

Útgáfudagur

13. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 5/2026

23. febrúar 2026

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 243/2026 um (7.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/187 frá 28. janúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum dýrum og vörum, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

C deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026

Tengd mál