Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fiskeldi
Undirritunardagur
23. febrúar 2026
Útgáfudagur
13. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 243/2026
23. febrúar 2026
REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 10. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/187 frá 28. janúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum dýrum og vörum, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 5/2026.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006, og lögum um fiskeldi, nr. 71/2008.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026