Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

23. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 14/2026

22. júní 2026

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 705/2026 um (8.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1189 frá 4. júní 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar beitingu takmarkana á notkun á tilteknum sýkingalyfjum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/2598. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 22. júní 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

C deild — Útgáfudagur: 23. júní 2026

Tengd mál