Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fiskeldi
Undirritunardagur
22. júní 2026
Útgáfudagur
23. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 705/2026
22. júní 2026
REGLUGERÐ
um (8.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 11. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1189 frá 4. júní 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar beitingu takmarkana á notkun á tilteknum sýkingalyfjum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/2598.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 14/2026.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006, og lögum um fiskeldi, nr. 71/2008.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 22. júní 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 23. júní 2026