Til þess að sjá um kennslu í akstri bifreiða og bifhjóla þarf að sækja um starfsleyfi ökukennara til sýslumanns í því umdæmi þar sem umsækjandi býr.
Starfsleyfið gildir í fimm ár, þó ekki lengur en umsækjandi hefur ökuréttindi.
Skilyrði
Að vera orðinn 21 árs.
Að hafa ekið bifreið að staðaldri síðustu þrjú árin.
Að hafa staðist sérstakt próf fyrir ökukennara að afloknu ökukennaranámi.
Heimilt er að synja manni um starfsleyfi til ökukennslu hafi hann verið dæmdur í sakamáli fyrir brot sem varðar sviptingu starfsleyfis.
Fylgigögn
Prófskírteini
Læknisvottorð
Sakavottorð, hægt að sækja stafrænt á island.is
Kostnaður
Fyrir starfsleyfi þarf að greiða 3.000 krónur.
Nýtt ökuskírteini kostar 8.600 krónur fyrir yngri en 65 ára en 1.800 krónur fyrir 65 ára og eldri.
Lesa má nánar um starfsleyfið í kafla VIII í reglugerð um ökuskírteini.
Endurnýjun starfsleyfis
Starfsleyfi gildir í 5 ár en þó ekki lengur en ökukennari hefur ökuréttindi.
Skilyrði
Að viðkomandi fullnægi enn skilyrðum til útgáfu starfsleyfis
Að viðkomandi hafi á starfsleyfistímabilinu sótt endurmenntunarnámskeið sem Samgöngustofa viðurkennir.
Fylgigögn
Læknisvottorð
Staðfestingu á að endurmenntun ökukennara sé lokið - sjá nánar á upplýsingasíðu fyrir ökukennara.
Sakavottorð, hægt að sækja stafrænt á island.is
Kostnaður
Fyrir endurnýjun starfsleyfis þarf að greiða 3.000 krónur.
Nýtt ökuskírteini kostar 8.600 krónur fyrir yngri en 65 ára en 1.800 krónur fyrir 65 ára og eldri.
Samgöngustofa getur afturkallað starfsleyfi ökukennara ef skilyrðum fyrir útgáfu leyfis er ekki lengur fullnægt.
Þjónustuaðili
Sýslumenn