Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staðan á mínu máli hjá lögreglu

Vegna rannsóknarhagsmuna er takmarkað hversu miklar upplýsingar lögreglan getur gefið um stöðu mála.

Vinnslutími

Vinnslutími mála hjá lögreglu er mislangur. Sum mál eru afgreidd fljótlega en þegar þarf að rannsaka mál getur það tekið frá nokkrum mánuðum og upp í ár eða lengur.

Staða á mínu máli

  1. Mál er tilkynnt lögreglu og tekið til skoðunar.

  2. Lögregla hefur rannsókn á máli. Lögreglan kallar eftir gögnum sem geta varpað ljósi á atvikið, ræðir við vitni, sakborninga og aðra sem geta varpað meira ljósi á málið.

  3. Að rannsókn lokinni er ákvörðun tekin um ákæru.

Ef rannsókn lögreglu leiðir til ákvörðunar um að það eigi að ákæra í málinu getur málið færst til héraðssaksóknara eða sætt saksókn í því embætti þar sem það var rannsakað eftir því hvers eðlis málið er.

Gott er að vita að samkvæmt íslenskum lögum má lögregla, eða ákæruvald, ekki leggja fram ákæru nema að meiri líkur en minni séu á að viðkomandi verði sakfelldur – eða sérstakar ástæður kalli á ákæru.

Þolendur kynferðisofbeldis á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum

Á Mínum síðum er hægt að skoða upplýsingar um stöðu kynferðisbrotamála á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Skoða stöðu lögreglumála á Mínum síðum

Þjónustuaðili

Lögreglan