Fara beint í efnið

Skoðunarhandbók ökutækja

Ný skoðunarhandbók ökutækja tók gildi þann 1. mars 2023. Handbókin er að langstærstu leyti sambærileg þeirri eldri hvað varðar skoðunaratriði, skoðunaraðferðir, tækjabúnað og dæmingar. Þó má finna áherslubreytingar, ný skoðunaratriði og nýja uppsetningu. Nokkuð er um vísanir í skráningareglur ökutækja.

Skoðunarhandbókin skiptist í nokkra hluta sem innihalda lýsingu á skoðunarkerfinu, verklagsbækur, samantektir og leiðbeiningar. Í skráningareglum má svo finna frekari stuðning við skoðanir í tengslum við skráningu og breytingar ökutækja.

Skoðunarhandbók ökutækja

Skráningareglur ökutækja

Fjöldi atriða er skoðaður í reglubundum skoðunum, bæði ástand ökutækisins og tæknilegt samræmi við kröfur um gerð og búnað ökutækja. Sem dæmi má nefna að farið er yfir verksmiðjunúmer ökutækisins og stöðu ökumælis, útblástursmengun mæld, ljós skoðuð og ljósabúnaður, hjólbarðar (vetrardekk og nagladekk), metankerfi og gasbúnaður, dráttarbeisli og dráttargeta, slökkvitæki, undirakstursvörn, hraðatakmarkari, hjólastilling (óeðlileg hjólastaða getur kallað á hjólastöðuvottorð) og miklu fleira.

Samgöngustofa minnir á að það er eigandi (umráðandi) ökutækis sem ber ábyrgð á að það sé í lögmæltu ástandi og ökumaður hverju sinni skal líka gæta þess að ökutækið sem hann ekur sé í góðu ástandi. Sú skoðun sem framkvæmd er samkvæmt skoðunarhandbók felur í sér athugun á því hvort lágmarkskröfum stjórnvalda um ástand ökutækisins sé náð og að gerð og búnaður þess sé löglegur.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa