Þeir sem sækja um skírteini til þess að mega gegna stöðu skipstjóra á skemmtibátum skulu hafa lokið bóklegu og verklegu prófi, sem haldið er af viðurkenndum prófdómurum til samræmis við 4. gr. reglna um próf til skemmtibátaskírteinis nr. 393/2008
Listi yfir prófdómara
Samgöngustofa hefur skipað eftirtalda einstaklinga til þess að gegna stöðu prófdómara í bóklegum og verklegum prófum til skemmtibátaskírteinis:
Prófdómarar bóklegra prófa
Nafn | Sími | Staður |
---|---|---|
Björgvin H. Fjeldsted | 8645124 | Hafnarfjörður |
Kjartan Örn Kjartansson | 8951414 | Reykjavík |
Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir | 8965874 | Kópavogur |
Vilbergur Magni Óskarsson | 6651120 | Reykjavík |
Prófdómarar verklegra prófa á vélskip
Nafn | Sími | Staður |
---|---|---|
Björgvin H. Fjeldsted | 8645124 | Hafnarfjörður |
Ísleifur Friðriksson | 6955117 | Seltjarnarnes |
Jón Magnússon | 8614321 | Akureyri |
Kjartan Örn Kjartansson | 8951414 | Reykjavík |
Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir | 8965874 | Kópavogur |
Theodór Haraldsson | 8954620 | Neskaupsstaður |
Þorsteinn Björnsson | 8644338 | Reykjavík |
Prófdómarar verklegra prófa á seglskip
Nafn | Sími | Staður |
---|---|---|
Björgvin H. Fjeldsted | 8645124 | Hafnarfjörður |
Halldór Sveinbjörnsson | 8946125 | Ísafjörður |
Ísleifur Friðriksson | 6955117 | Seltjarnarnes |
Jón Magnússon | 8614321 | Akureyri |
Jón Pétur Friðriksson | 6942314 | Reykjavík |
Kjartan Örn Kjartansson | 8951414 | Reykjavík |
Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir | 8965874 | Kópavogur |
Theodór Haraldsson | 8954620 | Neskaupsstaður |
Þorsteinn Björnsson | 8644338 | Reykjavík |
Hlutverk og starfsskilyrði prófdómara
Prófdómarar með bóklegu og verklegu prófi skulu skipaðir af Samgöngustofu til fimm ára í senn. Prófdómarar í verklegu prófi þurfa ekki að vera hinir sömu og gegna stöðu prófdómara í bóklegu prófi. Prófdómari bóklegs prófs skal a.m.k. hafa lokið skipstjórnarnámi til atvinnuskírteinis skv. námsstigi A. Prófdómari verklegs prófs skal a.m.k. vera handhafi sambærilegs skemmtibátaskírteinis. Samgöngustofa eða sá sem hún tilnefnir heldur skrá yfir skipaða prófdómara og skal hafa eftirlit með störfum þeirra.
Prófdómarar hafa yfirumsjón með framkvæmd bóklegra og verklegra prófa og hafa eftirlit með því að próf séu í samræmi við námskrá. Prófdómurum ber að tryggja svo sem kostur er samræmt námsmat.
Prófdómarar skulu vera óháðir og hafa það hlutverk að meta úrlausnir og færni. Enginn getur verið hvort tveggja prófdómari og kennari/prófskipuleggjandi. Telji prófdómari að hann geti verið vanhæfur til þess að gegna þeirri stöðu gagnvart þeim aðila sem annast fræðslu og þjálfun, þeim sem skipuleggur próf eða einstaka umsækjanda, skal hann gera viðvart þar um og fela öðrum prófdómara að meta úrlausnir og færni þegar svo háttar.
Prófdómurum er skylt að senda samgöngustofu eða þeim sem hún tilnefnir afrit af vottorðum ásamt skýrslu um undirbúning og framkvæmd prófa. Samgöngustofa eða sá sem hún tilnefnir skal halda skrá yfir þá sem öðlast hafa skemmtibátaskírteini og flokkun skemmtibátaskírteina.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa