Fara beint í efnið

Sérþarfalán til breytinga á húsnæði fyrir fatlað fólk

Umsókn um sérþarfalán

Sækja um

Þú sækir um sérþarfalán á lánavef HMS. Þar skráirðu inn upplýsingar um þig, eignina, þarfirnar og hvers konar lán þú vilt taka. Ef þú ert líka að sækja um annað lán hjá HMS geturðu sótt um sérþarfalán á sama tíma.

Ráðgjafar HMS geta aðstoðað þig við umsóknina gegnum síma eða í afgreiðslu.

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Læknisvottorð eða vottorð frá Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins.

  • Lýsing á sérþörfum, lýsing á breytingum, viðbótum eða nýju húsnæði og rökstuðningur fyrir nauðsyn þeirra.

  • Staðfesting á eigin fé, til dæmis með bankayfirliti.

  • Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.

  • Viðeigandi gögn, sjá hér á eftir.

Í framhaldi af umsókninni er þér beint í greiðslumat hjá CreditInfo til að kanna lánshæfi.

Þú færð staðfestingarpóst þegar umsóknin hefur verið send inn. Ráðgjafi mun hafa samband innan 3 virkra daga. Ef beðið er um viðbótargögn er mikilvægt að senda þau innan frestsins sem er gefinn, annars fellur umsókn úr gildi.

Þú getur alltaf fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum HMS.

Lán vegna breytinga á húsnæði

Önnur fylgigögn:

Lán samþykkt

  1. Þegar staðfesting á framkvæmdakostnaði og verklokum hefur borist er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1 til 3 virka daga.

  2. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu.

  3. Þegar lánaskjölum hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Lán vegna kaupa á húsnæði

Önnur fylgigögn:

  • Undirritað kauptilboð og söluyfirlit.

  • Ef lánið er viðbótarlán við lán hjá annarri lánastofnun þarf staðfestingu á upphæð og lánskjörum grunnlánsins.

Lán samþykkt

  1. Um leið og lánsumsókn er samþykkt er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1 til 3 virka daga.

  2. Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu, oft gert samhliða kaupsamningi.

  3. Þegar lánaskjölum hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.

Útgreiðsla

Lánið er greitt út 1 til 2 virkum dögum eftir að lánaskjöl berast.

Fyrsti vaxtadagur er 5 dögum frá kaupdegi láns. Fyrsta afborgun af láni er fyrsta dag annars mánaðar eftir það.

Dæmi: Fyrsti vaxtadagur er 10. janúar. Fyrsta afborgun af láni er 1. mars.

Þú getur fylgst með stöðu láns og greitt inn á það á Mínum síðum HMS.

Láni synjað

Ef lánsumsókn er synjað færðu tölvupóst með formlegu ákvörðunarbréfi með ástæðum synjunar. Þú getur haft samband með tölvupósti eða í síma og talað við ráðgjafa um ákvörðunina og hvað þurfi til að fá lán.

Ef þú ert ósammála niðurstöðunni getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Umsókn um sérþarfalán