Séreignarsparnaður - ráðstöfun inn á húsnæðislán
Spurt og svarað um séreignarsparnað inn á lán
Þú þarft að:
Vera skráður eigandi að lágmarki 30% eignarhluts
Hafa tekið lánið öflunar íbúðarhúsnæðisins og það að vera með veð í eigninni
Vera með skráð lögheimili í eigninni
Að auki mátt þú ekki hafa fullnýtt 10 ára ráðstöfunarheimild í eldri séreignarsparnaðar úrræðum.
Á forsíðu umsóknarinnar sérð þú hversu marga mánuði þú átt eftir af ráðstöfunarheimild.
Það eru mismunandi skilyrði fyrir ráðstöfun inn á lán og Fyrstu íbúð. Í báðum úrræðum er hægt að ráðstafa inn á lán en í Fyrstu íbúð er einnig hægt að sækja um að fá uppsöfnuð iðgjöld greidd út á bankareikning við fasteignakaup.
Lesa nánar um séreignarsparnað nýttan við kaup á fyrstu íbúð
Heimilt er að ráðstafa í samtals 10 ár að hámarki 120 mánuði.
Til frádráttar:
Áður nýtt tímabil umsækjanda í öðrum séreignarsparnaðarúrræðum.
Ef hámarksheimild ársins var náð á minna en 12 mánuðum jafngildir það 12 mánaða nýtingu.
Ef maki hefur áður nýtt sameiginlega heimild inn á Leiðrétting.is reiknast það sem nýting hjá þér.
Ef þú nýtir 12 mánuðir á einu ári, telst þú hafa nýtt heilt ár í ráðstöfun óháð því hvort þú hafir náð hámarksfjárhæð þess árs.
Nei, iðgjöldin ráðstafast eingöngu á höfuðstól íbúðarhúsnæðislána.
Eftir samþykki frá Skattinum þá er umsóknin afgreidd hjá lánveitanda og séreignarsjóði sem sjá um að koma greiðslum frá séreignarsjóði inn á lánið.
Sé allt rétt í umsókninni og umsækjandi er að greiða að jafnaði í séreignarsjóð þá getur það tekið 1-4 mánuði fyrir fyrstu greiðslu að berast á lánið eftir samþykki frá Skattinum. Eftir það eru greiðslur að koma á lánið á 1-4 mánaða fresti, allt eftir því hve oft þinn séreignarsjóður greiðir til lánveitanda.
Greiðslur berast ekki alltaf í hverjum mánuði. Það er mismunandi milli séreignarsjóða hvað þeir greiða iðgjöldin oft til lánveitanda. Séreignarsjóðurinn skal greiða að lágmarki fjórum sinnum á ári til lánveitanda. Lánveitandi sér síðan um að koma greiðslunum inn á lánið.
Nei, ekki er hægt að ráðstafa inn á lán maka.
Það er skilyrði að umsækjandi sé:
þinglýstur eigandi með að minnsta kosti 30 % eignarhlut
skráður á lánasamningi lánsins
með lögheimili í eigninni.
Nei, það er enginn umsóknarfrestur á umsóknunum. Umsókn gildir frá og með umsóknarmánuði.
Þó gilda umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 frá janúar 2026.
Athugið að það er umsóknarfrestur í Fyrstu íbúðar úrræðinu.
Já, greiðslur úr séreignarsjóði sem ráðstafað er inn á íbúðarhúsnæðislán í gegnum úrræði Skattsins eru skattfrjálsar.
Athugið að ef ráðstöfun fer yfir hámarksheimild ársins þarf að greiða skatt af þeirri upphæð sem fer umfram hámarksheimild.
Nei, ekki er hægt að sækja um útgreiðslu á séreignarsjóði, aðeins um mánaðarlega ráðstöfun iðgjalda á íbúðarhúsnæðislán.
Útgreiðsla er aðeins í boði fyrir umsækjendur um að nýta séreignarsparnaða vegna kaupa á fyrstu íbúð.
Já, ef maki nýtti sameiginlega ráðstöfunarheimild á Leiðrétting.is þá skerðir það ráðstöfunarheimild þína í þessu úrræði.
Heimilt er að ráðstafa í samtals 120 mánuði að teknu tilliti til hámarksfjárhæða hvers árs.
Ef hámarksfjárhæð ársins er náð á minna en 12 mánuðum jafngildir það 12 mánaða nýtingu.
Ef maki hefur áður nýtt sameiginlega heimild inn á Leiðrétting.is reiknast það sem nýting hjá þér
Nei, það er ekki hægt að ráðstafa inn á lán sem var tekið til kaupa á búseturétti.
Nei, það er aðeins hægt að ráðstafa inn á íbúðarhúsnæðislán sem:
tekið er vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota
er vera með veði í eigninni sem sótt er um vegna
umsækjandi þarf að vera skráður á lánasamningnum.
Ég var að breyta henni en það er ekki búið að uppfærast í umsókninni
Ef þú fékkst höfnun vegna lögheimilisskráningu og eignin er sannarlega til eigin nota þá getur þú sótt um aftur.
Fyrst þarft þú að skrá lögheimilið þitt í eignina hjá Þjóðskrá. Skráningin getur tekið nokkra daga að uppfærast og síðan getur þú sótt um að nýju.
Ef þú telur að niðurstaðan sé röng þá getur þú sent tölvupóst með beiðni um endurupptöku.
Hafa samband | Skatturinn - skattar og gjöld
Skrifa skal glögglega hvað þú telur rangt í niðurstöðunni með útskýringu og viðbótargögnum ef þörf er á.
Þjónustuaðili
Skatturinn