Séreignarsparnaður - ráðstöfun inn á húsnæðislán
Þú getur nýtt séreignarsparnað til að greiða mánaðarlega inn á húsnæðislán í allt að 10 ár. Lánið þarf að vera vegna húsnæðis sem þú átt og býrð í.
Umsókn verður aðgengileg á þjónustuvef Skattsins í byrjun október. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 munu gilda fyrir mánaðarlegar greiðslur allt árið (frá 1. janúar 2026).
Skilyrði
Til þess að geta nýtt séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán þarft þú að:
eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu
vera með lögheimili í húsnæðinu
vera með lán sem er tryggt með veði í húsnæðinu
Við kaup á fyrstu íbúð
Í gildi er sambærilegt úrræði fyrir kaup á fyrstu íbúð. Um það gilda aðrar reglur.
Almennt er séreignarsparnaður (viðbótarlífeyrissparnaður) ætlaður til að byggja upp eign til að nýta við starfslok. Þegar launþegi hefur virkjað séreignarsparnað er sjálfkrafa greitt viðbótariðgjald í séreignarsjóð við hverja útborgun launa og vinnuveitandi leggur að auki til viðbótarframlag.
Umsókn
Sótt er um á þjónustuvef Skattsins. Velja þarf hvaða séreignarsjóði verður greitt úr og hvaða lán á að borga inn á.
Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvert fyrir sig.
Gildistími og afgreiðsla:
Umsóknir gilda um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst.
Það getur tekið 1–3 mánuði áður en fyrstu greiðslur berast inn á lánið (greiðslur fyrir tímabilið frá því að umsókn var samþykkt).
Úrræðið gildir að hámarki í 10 ár (eða ígildi 120 mánaða).
Undantekning á þessu er að umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 munu gilda fyrir mánaðarlegar greiðslur allt árið (frá 1. janúar 2026).
Ef þú hefur áður ráðstafað séreignarsparnaði í öðrum úrræðum dregst það frá 10 ára tímabilinu. Útreikningar miðast bæði við lengd ráðstöfunar og hámarksfjárhæðir hvers árs.
Í umsóknarferlinu sérðu hve marga mánuði þú átt eftir af 10 ára tímabilinu.
Hámarksfjárhæð á ári
Árið 2026 getur þú greitt allt að 500.000 krónur inn á lánið, miðað við greiðslur í 12 mánuði. Fjárhæðin breytist í byrjun hvers árs í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Hámarksfjárhæðin skiptist svona:
Þitt framlag er allt að 4% af launum, að hámarki 333.000 krónur á ári.
Framlag launagreiðanda er allt að 2% af launum, að hámarki 167.000 krónur á ári.
Framlag launagreiðanda má ekki vera hærra en þitt framlag.
Ef greitt er meira úr séreignarsjóði en reglurnar leyfa verður umframgreiðslan skattlögð sem tekjur. Þetta getur til dæmis gerst ef launagreiðandi greiðir meira en 2% af launum ársins.
Hámarkstímabil - hvernig teljum við mánuðina?
Þú getur greitt inn á lánið í 10 ár, eða 120 mánuði samtals. Ef þú nýtir hámarksfjárhæð ársins telst það jafngilda 12 mánuðum, óháð því hversu margar greiðslur ársins eru.
Dæmi:
Einstaklingur A ráðstafar séreignarsparnaði í hverjum mánuði í eitt ár án þess að fara yfir hámarksfjárhæð. Í lok árs hefur hann nýtt 12 mánuði í ráðstöfun og á því 108 mánuði eftir (9 ár).
Einstaklingur B ráðstafar hámarksfjárhæð ársins með greiðslum í 5 mánuði. Hámarksfjárhæðin telst jafngilda 12 mánaða ráðstöfun og hann á því 108 mánuði eftir (9 ár).
Hjón C ráðstöfuðu í fyrra úrræði (á Leiðrétting.is) hámarksfjárhæð ársins, sem þá var 750.000 krónur. Þau teljast hafa nýtt 12 mánuði af ráðstöfunarheimild og eiga því hvort um sig 108 mánuði eftir (9 ár).
Breytingar á umsókn
Þjónustuaðili
Skatturinn