Rekstrarleyfi veitingastaða
Flokkar og tegundir veitingastaða
Veitingastaðir eru flokkaðir eftir þörf á eftirliti og áhrifum starfsemi á umhverfi, svo sem vegna afgreiðslutíma, hávaða og áfengisveitinga.
Flokkar veitingastaða
Flokkur 1: Staður án áfengisveitinga. (Ekki þarf leyfi sýslumanns fyrir veitingastað í flokki I)
Flokkur 2: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu svo sem með háværri tónlist og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Flokkur 3: Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.
Tegundir veitingastaða
Veitingastaðir skiptast í eftirtaldar tegundir eftir starfsemi og þjónustu sem bjóða á viðskiptavinum. Hver einstök tegund veitingastaða getur fallið undir fleiri en einn framangreindan flokk, í samræmi við þá starfsemi sem rekstrarleyfi viðkomandi staðar hljóðar um.
Veitingahús
Veitingastaður með fjölbreyttar veitingar í mat og drykk og fulla þjónustu. Í veitingahúsi skal vera starfandi maður með fullnægjandi þekkingu í framreiðslu.
Skemmtistaður
Veitingastaður með reglubundna skemmtistarfsemi og fjölbreyttar veitingar í mat og/eða drykk. Hér undir falla einnig staðir þar sem aðaláhersla er lögð á áfengisveitingar, dans gesta, tónlist og langan afgreiðslutíma en engar eða takmarkaðar veitingar í mat.
Veitingastofa og greiðasala
Veitingastaðir með fábreyttar veitingar í mat og/eða drykk. Á slíkum stöðum er minni þjónusta og gestir geti mögulega afgreitt sig sjálfir að hluta eða öllu leyti. Hér undir falla til dæmis skyndibitastaðir og söluskálar með aðstöðu til neyslu veitinga.
Veisluþjónusta og veitingaverslun
Staðir þar sem sala veitinga fer fram sem ekki er til neyslu á staðnum.
Kaffihús
Veitingastaður með einfaldar veitingar í mat og/eða drykk þar sem aðaláhersla er lögð á kaffiveitingar. Hér undir falla til dæmis bakarí sem hafa aðstöðu til neyslu veitinga á staðnum.
Krá
Veitingastaður með takmarkaða þjónustu og einfaldar eða engar veitingar í mat, þar sem aðaláhersla er lögð á áfengisveitingar og langan afgreiðslutíma.
Samkomusalir
Staðir sem eru sérstaklega útbúnir og ætlaðir til hvers kyns samkomuhalds og til þess leigðir út í atvinnuskyni til einstaklinga og/eða fyrirtækja, hvort sem er með eða án veitinga í mat og/eða drykk. Félagsheimili, íþróttasalir, flugskýli, vöruskemmur og önnur húsakynni sem að jafnaði eru ekki ætluð til samkomuhalds í atvinnuskyni geta fallið hér undir ef útleiga til skemmtanahalds fer oftar fram en tólf sinnum á ári.
Þjónustuaðili
Sýslumenn