Rekstrarleyfi veitingastaða í flokki II
Áður en sótt er um rekstrarleyfi, er mikilvægt að kynna sér upplýsingar um skilyrði og fylgigögn umsóknarinnar.
Gildistími og umfang rekstrarleyfis
Rekstrarleyfið er ótímabundið.
Leyfishafi skal tafarlaust tilkynna sýslumanni ef hann hyggst hætta hinni leyfisskyldu starfsemi.
Rekstrarleyfi er bundið við leyfishafa og er á engan hátt framseljanlegt. Þá er rekstrarleyfið jafnframt bundið við hina tilgreindu starfsemi og staðsetningu.
Fyrirtæki
Vinsamlegast athugið að ef sótt er um í nafni fyrirtækis þarf prókúruhafi að sækja um.
Varðandi útiveitingar í Reykjavík bendum við á nánari upplýsingar á vefslóð borgarinnar, https://reykjavik.is/ibuar-umhverfi-og-samgongur/utiveitingar-borgarlandi.
Kostnaður
Leyfi til reksturs veitingastaða í flokki II kostar 86.000 krónur
Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast umsóknina í pdf formi hér
Þjónustuaðili
Sýslumenn