Upplýsingasíða - Breytt fyrirkomulag fósturleyfa útgefnum af Barnaverndarstofu
Fóstur felst í því að barnaverndarþjónusta feli sérstökum fósturforeldrum umsjá barns í að minnsta kosti 3 mánuði. Markmið fósturs er að tryggja barni uppeldi og umönnun innan fjölskyldu svo sem best hentar þörfum þess. Á vef Barna- og fjölskyldustofu má finna nánari upplýsingar um fóstur.
Hjón og sambýlisfólk skulu sækja um saman.
Umsóknarferli
Umsækjandi sækir um leyfi til GEV og skilar fylgigögnum.
GEV kannar hvort nauðsynlegar upplýsingar og gögn fylgi umsókn.
Umsagnarbeiðni er send til Barna- og fjölskyldustofu.
Barna- og fjölskyldustofa boðar umsækjanda á námskeið og skilar í framhaldinu umsögn til GEV
GEV tekur ákvörðun um útgáfu leyfis og upplýsir umsækjanda.
Fylgigögn með umsókn
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilsmeðlima 15 ára og eldri. Prenta þarf út eyðublaðið og fylla það út.
Læknisvottorð frá heimilislækni sem staðfestir líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda
Skattaskýrslur síðastliðinna tveggja ára. Skýrslurnar má nálgast rafrænt á þjónustuvef Ríkisskattstjóra (ef ný umsókn, annars skattaskýrsla sl. árs ef endurnýjun)
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála