Að gefnu tilefni vill Persónuvernd vekja athygli á því að
stofnuninni hefur borist fjöldi ábendinga, bæði frá foreldrum barna og
starfsmönnum skóla og leikskóla, um breytta starfshætti vegna nýrra
persónuverndarlaga. Svo virðist sem misskilnings gæti víða í skólasamfélaginu
um til hvaða aðgerða þurfi að grípa til þess að skólastarf samrýmist nýjum
persónuverndarlögum. Persónuvernd hefur af því tilefni sent <span id="tmp_1540382555645_3"> <a href="/media/frettir/Abending-fra-Personuvernd-vegna-misskilnings-i-skolasamfelaginu-um-gildissvid-nyrra-personuverndarlaga.docx.pdf" class="internalmedia"><strong>ábendingu</strong></a> </span> til
persónuverndarfulltrúa sveitarfélaga, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Heimilis
og skóla og annarra hagsmunaaðila. <br>