Leit í gögnum Þjóðskjalasafns Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir opinber skjöl og fjölbreytt einkaskjalasöfn sem varpa ljósi á sögu íslensks samfélags, stjórnsýslu og einstaklinga. Safnið gegnir lykilhlutverki í að tryggja að almenningur, fræðafólk og nemendur hafi aðgang að heimildum um fortíðina.
Í safninu er hægt að fá aðgang að margvíslegum heimildum, meðal annars:
skjölum frá opinberum aðilum,
manntalsskjölum, kirkjubókum og öðrum sögulegum skráningargögnum ,
dómabókum, þingbókum og öðrum skjölum frá dómstólum og sýslumannsembættum,
ýmsum einkaskjalasöfnum einstaklinga, félaga og fyrirtækja, svo sem bréf, dagbækur og fundargerðir,
sögulegum kortum, uppdráttum og teikningum,
ýmsum stafrænum skjölum og gagnagrunnum sem gerðir hafa verið aðgengilegir á vef safnsins.
Aðgangstakmarkanir
Mikilvægt er þó að hafa í huga að aðgangur að sumum skjölum er takmarkaður vegna persónuverndar og laga um opinber skjalasöfn. Ekki eru öll skjöl gerð opin og aðgengileg strax. Almennt eru helstu viðmið:
Almenn opinber skjöl verða yfirleitt aðgengileg við 30 ára aldur.
Skjöl með viðkvæmum persónuupplýsingum geta verið lokuð í 80 ár.
Sjúkragögn eru almennt lokuð í 100 ár.
Einstaklingar geta fengið aðgang að gögnum sem varða þá sjálfa.
Þjónustuaðili
Þjóðskjalasafn Íslands