Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Gjaldskrá

Um þjónustu Þjóðskjalasafns gildir gjaldskrá nr. 1360/2021 sem tók gildi 1. desember 2021.

Gjald fyrir ljósritun og afritun gagna úr safnkosti

Lýsing

Verð

Ljósritun A3/A4 hver síða

170 krónur

Rafrænt afrit – lággæði hver mynd

150 krónur

Rafrænt afrit – hágæði hver mynd

1.400 krónur

Staðfest vottorð hver síða

700 krónur


Gjald fyrir kostnað sem fellur til við að veita aðgang að þrotabúum og öðrum óskráðum og óflokkuðum skjalasöfnum.

Lýsing

Verð

Tímavinna starfsmanns

8.100 krónur

Ljósritun A3/A4 hver síða

170 krónur

Rafrænt afrit – lággæði hver mynd

150 krónur

Rafrænt afrit – hágæði hver mynd

1.400 krónur

Staðfest vottorð hver síða

700 krónur


Gjald fyrir móttöku, frágang og flutning skjalasafna afhendingarskylds aðila sem hefur hætt starfsemi eða verið lagður niður.

Séu skjalasöfn afhendingarskyldra aðila, sem hafa hætt starfsemi eða verið lagðir niður, ekki frágengin og skráð samkvæmt reglum þar um mun Þjóðskjalasafn taka gjald fyrir móttöku, flutning, frágang og skráningu skjalanna, hvort sem þau eru á rafrænu formi eða á pappír.

Lýsing

Verð

Tímavinna starfsmanns

8.100 krónur

Kostnaður við umbúðir á hvern hillumetra

8.800 krónur


Gjald fyrir varðveislu pappírsskjala afhendingarskyldra aðila sem eru yngri en 30 ára.

Fyrir varðveislu pappírsskjala afhendingarskyldra aðila sem eru yngri en 30 ára gömul tekur Þjóðskjalasafn Íslands gjald samkvæmt gjaldskrá safnsins. Í 8. mgr. 15. gr. laga um opinber skjalasöfn er kveðið á um heimild safnsins til að taka gjald fyrir varðveislu skjala sem eru yngri en 30 ára gömul. Áður en kemur að afhendingu á pappírsskjölum sem eru yngri en 30 ára gömul er reiknað út hvert gjaldið verður og gert samkomulag um greiðslu gjaldsins við afhendingarskyldan aðila.

Lýsing

Verð

Varðveisla pappírsskjala hver hillumetri á ári

6.000 krónur

Athygli er vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 5. gr. gjaldskrár Þjóðskjalasafns Íslands skal vörslukostnaður fyrir pappírsskjöl sem eru yngri en 30 ára frá afhendingarskyldum aðilum sem hafa verið lagðir niður greiddur af því ráðuneyti eða sveitarfélagi sem viðkomandi aðili heyrði undir.


Gjald fyrir varðveislu skjala sveitarfélaga.

Fyrir varðveislu pappírsskjala sveitarfélaga tekur Þjóðskjalasafn gjald en samkvæmt 5. mgr. 14. gr. laga um opinber skjalasöfn eiga sveitarfélög að greiða Þjóðskjalasafni gjald fyrir varðveislu skjala.

Lýsing

Verð

Varðveisla pappírsskjala hver hillumetri á ári

6.000 krónur

Varðveisla rafrænna gagna hvert gígabæti á ári

1.200 krónur


Gjald fyrir varðveislu og eyðingu á skjölum þrotabúa.

Þrotabú skulu greiða Þjóðskjalasafni Íslands árlegt vörslugjald fyrir hvern hillumetra skjala sem safnið varðveitir í sjö ár og eyðingu skjalanna að þeim tíma loknum. Vörslugjald greiðst í einu lagi fyrir sjö ár frá skiptalokum þegar safnið er afhent Þjóðskjalasafni til vörslu.

Lýsing

Verð

Varðveisla pappírsskjala hver hillumetri á ári

4.720 krónur

Varðveisla rafrænna gagna hvert gígabæti á ári

950 krónur

Eyðing skjala hvert kíló

34 krónur