Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sinnir eftirliti með gæðum þjónustu. Eftirlit getur verið reglubundið, byggt á áhættumati eða vegna ákveðins tilefnis, ábendinga eða upplýsinga sem stofnuninni hefur borist vegna kvörtunarmáls.
Ferli
GEV aflar upplýsinga og gagna sem eru nauðsynleg eru.
GEV framkvæmir vettvangsathuganir á heimilum, stofnunum og öðrum starfsstöðvum þar sem veitt er þjónusta sem lýtur eftirliti stofnunarinnar.
GEV er heimilt að framkvæma vettvangsathugun án þess að gera boð á undan sér.
Við framkvæmd vettvangsathugana ber stofnuninni að gæta að friðhelgi einkalífs þeirra sem búa eða dvelja á heimilum og stofnunum sem athuganir lúta að.
Sá sem veitir eftirlitsskylda þjónustu skal veita stofnuninni frjálsan aðgang að öllum starfsstöðvum sínum.
Stofnuninni er heimilt að afla milliliðalaust upplýsinga frá notendum þjónustunnar, aðstandendum og starfsfólki.
Við framkvæmd eftirlits skulu notendur fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við stofnunina í samræmi við markmið þjónustunnar og aðstæður notenda.
Frumkvæðisathugunum stofnunarinnar lýkur með skýrslu þar sem gerð grein fyrir tilefni eftirlits, framkvæmd athugunar, gagnaöflun, lýsingu á vettvangsathugun og niðurstöðum stofnunarinnar um hvort þjónusta sé í samræmi við gæðaviðmið og ákvæði laga, reglugerða, reglna, samninga og leiðbeininga og/eða skilyrði rekstrarleyfis.
Ef tilefni er til skal stofnunin setja fram tilmæli um úrbætur sem gera verður innan ákveðins tíma.
Lög
Um stjórnsýslukæru vegna stjórnvaldsákvarðana Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga sbr. 14.-16. gr. laga um stofnunina.
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála