Allir geta sent inn ábendingu varðandi þjónustu sem heyrir undir eftirlitshlutverk GEV.
Undir það fellur:
Barnavernd
Samþætting þjónustu í þágu velferðar barna
Félagsþjónusta sveitarfélaga
Þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Málefni eldra fólks
Barna- og fjölskyldustofa
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu
Notendur þjónustu geta einnig sent inn kvörtun vegna gæða þjónustunnar.
Ábendingar geta orðið til þess að stofnunin hefji frumkvæðiseftirlit.
Athugið að þau sem senda inn ábendingu teljast ekki aðilar máls. Viðkomandi hefur því ekki tilkall til að fá upplýsingar um framvindu máls og hvort ábendingin verði til þess að GEV hefji frumkvæðiseftirlit.
Persónuvernd
GEV gætir leyndar um persónuupplýsingar þeirra sem beina ábendingu til stofnunarinnar nema viðkomandi veiti afdráttarlaust samþykki sitt fyrir öðru.
Lög
Fjallað er um ábendingar í 13. grein laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála