Fara beint í efnið

Kvörtun til Persónuverndar

Kvörtun til Persónuverndar

Almennt

Ábendingar um hugsanleg brot eða almenna fyrirspurn getur þú sent Persónuvernd á postur@personuvernd.is.

Persónuvernd úrskurðar um kvartanir yfir vinnslu persónuupplýsinga. Aðeins dómstólar úrskurða um skaðabætur vegna vinnslu persónuupplýsinga.

Hver getur kvartað?

Þú getur kvartað ef þú telur að brotið hafi verið gegn persónuverndarlöggjöf við vinnslu persónuupplýsinga þinna.

Foreldrar og forráðamenn geta kvartað fyrir hönd barna sinna.

Þú getur ekki kvartað yfir vinnslu persónuupplýsinga um aðra einstaklinga nema hafa frá þeim skriflegt, undirritað og vottað umboð (pdf).

Stofnanir, samtök eða félög geta lagt fram kvörtun án umboðs, að vissum skilyrðum uppfylltum.

Áður en kvörtun er send

Áður en þú hefur kvörtunarferlið er gott að hafa tiltæk öll fylgiskjöl sem þú ætlar að senda inn með kvörtuninni.

Áður en kvörtunareyðublaðið er fyllt út þarf að hafa eftirfarandi í huga:

  • Kvörtun verður að beinast að tilgreindum aðila.

  • Kvörtunin verður að vera rökstudd.

  • Ekki er hægt að senda inn nafnlausar kvartanir – aðilinn sem þú kvartar yfir mun fá afrit af kvörtuninni og öðrum málsgögnum.

Afgreiðsla mála

Almennt má áætla að afgreiðsla mála geti tekið um 18 mánuði. Afgreiðslutími getur lengst ef mál eru flókin eða mikil að umfangi.

Nánar um afgreiðslutíma mála hjá Persónuvernd.

Kvörtun vísað frá

Ef sami ágreiningur er til meðferðar hjá dómstólum eða öðrum stjórnvöldum verður mál ekki afgreitt á sama tíma hjá Persónuvernd.

Kvörtun til Persónuverndar

Þjónustuaðili

Persónu­vernd

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugarvegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820