Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fyrirlögn prófa

    Í þessum hluta er fjallað um mikilvæg atriði sem framkvæma þarf á prófdegi eða allt frá því að kennari skráir nemendur í próf þar til nemendur ljúka prófi.

    Efni kaflans

    Þegar skráning nemenda í próf hefur farið fram og nemendur er komnir í sætin sín með innskráningarupplýsingar (notandanafn og lykilorð) tilbúnar á borðunum þarf að tryggja að þrjú skref séu stigin í réttri röð:

    (1) kennari les leiðbeiningar upphátt til allra nemenda í upphafi, (2) nemendur opna prófaforritið og skrá sig inn með notandanafni og lykilorði, (3) nemendur lesa leiðbeiningar á upplýsingasíðum prófs og kennari tryggir að þeir hafi hjálpargögn sem þarf fyrir viðkomandi próf. Þá tekur við hlutverk nemenda í skrefum 4-6: að hefja prófið, leysa það og ljúka því.

    Hér á eftir er nánari lýsing fyrir kennara á hverju skrefi. Í lok þessa hluta handbókar eru sömu skref listuð upp í formi leiðbeininga til nemenda sem í boði er að nota til aðstoðar fyrir sjónrænt skipulag til nemenda við fyrirlögn.

    Skref 1: Lestur leiðbeininga til nemenda

    Kennari les leiðbeiningar upp sem leiðir nemendur í gegnum nauðsynleg skref til að hefja próf. Mikilvægt er að nemendur skrái sig ekki inn í prófið fyrr en kennari segir til svo upplesturinn taki ekki próftíma af nemendum (sjá kaflann Leiðbeiningar lesnar í upphafi prófs).

    Að loknum upplestri skal tryggja vinnufrið og að sérhver nemandi hafi það sem þarf til að hefja próf. Þá má minna nemendur á hvað þeir skulu gera eftir að þeir ljúka prófi og þar til próftíma lýkur samkvæmt fyrirkomulagi skólans (sjá kaflann Að loknu prófi).

    Skref 2: Innskráning nemenda í prófakerfi

    Hver nemandi fær úthlutað notandanafni og lykilorði sem hann hefur útprentað á borðinu sínu. Gott er að hafa í huga að innskráning í prófið getur tekið dálítinn tíma og gera má ráð fyrir að nemendur í yngri bekkjum þurfi meiri aðstoð við innskráninguna en þeir eldri.

    Innskráning nemenda í prófið ræðst af því á hvers konar tæki þeir taka prófin. Mikilvægt er að kennari þekki vel innskráningarleiðina fyrir þau tæki sem nemendur hans taka prófin á. Sjá nánari leiðbeiningar hér eftir tækjum:

    Skref 3: Hjálpargögn í prófum

    Stærðfræðipróf

    • Rissblöð og skriffæri: Nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa hjá sér rissblað og skriffæri til útreikninga. Mikilvægt er að rissblöðum sé eytt með öruggum hætti eftir hverja próffyrirlögn.

    • Reiknivélar á unglingastigi: Reiknivélar eru leyfðar í 8., 9. og 10. bekk. Nota má eigin reiknivél eða reiknivél á skjá inni í viðmóti prófakerfis.

    • Engar reiknivélar á yngsta og miðstigi: Reiknivélar á þessum stigum eru ekki leyfðar svo hægt sé að tryggja réttmæti prófanna við að meta talnaleikni í þessum árgöngum.

    • Þýðingarforrit: Nemendum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn stendur til boða að nota þýðingarforrit í stærðfræðiprófi í öðru tæki sem tæknitengiliðir sjá um að undirbúa. Athugið að samkvæmt athugunum hjá MMS þýðast til dæmis 15–20% stærðfræðihugtaka í Google Translate ekki nákvæmlega eða rétt.

    • Upplestur á stærðfræðiprófi – sjá kaflann Stuðningsúrræði.

    Að auki eru í stærðfræðiprófi sömu aðgengistól og í lesskilningsprófi.

    Lesskilningspróf

    Eins og fram hefur komið er ekki boðið upp á upplestur í lesskilningsprófi þar sem verið er að kanna að hvaða marki nemendur geta nýtt lestrarfærni sína til að tileinka sér efni texta. Prófakerfið býður upp á nokkur aðgengistól sem geta gert lesturinn aðgengilegri eða þægilegri. Þau eru:

    • Lestrarstika eða lestrargluggi: Lestrarstikuna er hægt að stækka og minnka. Hún getur til dæmis hjálpað nemendum að fara ekki línuvillt á skjá.

    • Áherslupennar: Í prófakerfinu er boðið upp á áherslupenna í mörgum litum. Notkun þeirra getur til dæmis hjálpað nemendum að finna atriði í texta sem skipta máli.

    • Bakgrunnslitur á skjá: Hægt er að breyta bakgrunnslit í viðmóti en þessi möguleiki getur til dæmis nýst nemendum sem eru vanir að lesa af skjá með dökkum bakgrunni.

    • Stækkun á letri: Hægt er að stækka letur en það getur komið sér vel þar sem tæki og skjáir geta verið mismunandi.

    Athugið að mikilvægt er að nemendur fái þjálfun í að velja sér verkfæri sem henta þeim og venjast því að nota þau ÁÐUR en að próftöku kemur með því að fara eins oft og þarf í gegnum sýnispróf.

    Skref 4–6: Meðan á prófi stendur

    Eftir að nemendur hefja próf getur kennari gengið um og séð á vinnustiku nemenda neðst á skjá þeirra hvernig fram vindur með að svara prófatriðum.