Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fyrirlögn prófa

    Í þessum hluta er fjallað um mikilvæg atriði sem framkvæma þarf á prófdegi eða allt frá því að kennari skráir nemendur í próf þar til nemendur ljúka prófi.

    Ef spurningar vakna á meðan fyrirlögn stendur yfir, þar sem mögulega þarf að víkja frá leiðbeiningum um fyrirlögn prófanna, skal ávallt hafa samband við MMS og fá samþykki fyrir því. Sama á við ef upp koma óvænt tilvik við fyrirlögn sem bregðast þarf við. Í öllum tilvikum á að tilkynna MMS um þessi tilvik. Senda má póst á hjalp@midstodmenntunar.is.

    Gott er að tilgreina málavexti skýrt í erindinu, nafn þess sem hefur samband og símanúmer viðkomandi.