Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fyrirlögn prófa

    Í þessum hluta er fjallað um mikilvæg atriði sem framkvæma þarf á prófdegi eða allt frá því að kennari skráir nemendur í próf þar til nemendur ljúka prófi.

    Mikilvægt er að ákveðin ró og góður vinnufriður séu til staðar á prófstað og við próftöku. Á sama tíma verður að sýna aðstæðum og þörfum nemenda skilning og bregðast við í samræmi við velferð barna.

    Farsímar og önnur snjalltæki eru bönnuð meðan á prófi stendur. Hafi nemendur farsíma með sér er nauðsynlegt að slökkt sé á þeim og þeim komið í örugga vörslu.

    Nemendum er óheimilt að hlusta á tónlist meðan á próftöku stendur.