Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fyrirlögn prófa

    Í þessum hluta er fjallað um mikilvæg atriði sem framkvæma þarf á prófdegi eða allt frá því að kennari skráir nemendur í próf þar til nemendur ljúka prófi.

    Í ljósi þessi hve fyrirlagnartímabilið er rúmt er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af veikindum nemenda á fyrirhuguðum prófadögum en gott er að hefja fyrirlögn snemma innan fyrirlagnartímabils til að það nýtist sem best. Það eykur líkurnar á að það takist að leggja prófin fyrir alla nemendur.