Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. febrúar 2026 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Umskráningar (eigenda og umráðenda)

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku tilkynninga um skráningu eigenda og umráðenda (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    Efni kaflans

    Skráning meðeiganda

    Heimilt er að skrá fleiri en einn eiganda að ökutæki og er einn þeirra skráður aðaleigandi en hinir meðeigendur. Allir eigendur teljast þó jafnir að lögum nema annað komi sérstaklega fram í samningi milli þeirra. Ekki er unnt að skrá eignarhlutfall eigenda í ökutækjaskrá.

    Frá 1. maí 2025 er miðað við að nánast allar tilkynningar um eigendaskipti fari í starfænt ferli. Ef ekki er unnt að nota stafrænt ferli þarf tilkynning að berast Samgöngustofu beint, ekki í gegnum þjónustuaðila. Með breytingunni mun afgreiðsla eigendaskipta á pappír taka allt að 7 daga frá því að þau berast Samgöngustofu. Þetta er gert til að tryggja áreiðanleika gagna enn betur en áður. Þjónustuaðilar eru beðnir um að beina viðskiptavinum á stafræn eigendaskipti á heimasíðu Samgöngustofu.

    Móttaka tilkynninga á pappír

    Til 30. apríl 2025 gildir eftirfarandi ferli.

    Við móttöku tilkynningar er gengið úr skugga um að hún sé í frumriti, sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef tilkynning er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf. Sömu skilyrði gilda um útfyllingu eins og um útfyllingu tilkynningar um eigendaskipti hér ofar, en auk þess gildir:

    • Merkja á við hvers eðlis tilkynningin er, þ.e. skráning á nýjum meðeiganda, breyting, ný röð eða niðurfelling.

    • Niðurfelling meðeiganda og breyting á röð: Allir eigendur skulu undirrita tilkynninguna og einn vitundarvott þarf að undirskriftum aðila. Ef ritað er undir fyrir þeirra hönd skal vottað umboð að fylgja með.

    Skráning meðeiganda við nýskráningu og við eigendaskipti er gerð samhliða þeim aðgerðum (í viðkomandi aðgerð).

    Skráningarhæfar tilkynningar eru mótteknar, greiðslustimplaðar af þjónustuaðila og sendar daglega til Samgöngustofu. Réttaráhrif eigendaskipta miðast við skráningardag þ.e. eigendaskipti taka gildi þegar þau eru skráð hjá Samgöngustofu. Mótteknar tilkynningar sem berast Samgöngustofu til skráningar eru færðar í tímaröð. Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag tilkynninga (eftir greiðslustimpli) í ökutækjaskrá.

    Gjaldtaka

    • Gjald Samgöngustofu fyrir skráningu meðeiganda, niðurfellingu á meðeiganda og breytingu á röð meðeiganda er skráningargjald meðeiganda 1.265 krónurfyrir hverja umsókn.

    • Samgöngustofa tekur ekki gjald fyrir skráningu meðeigenda við nýskráningu og eigendaskipti.

    Tölvuvinnsla

    Allar tilkynningar á pappírsformi ber að senda til Samgöngustofu daglega.