Fara beint í efnið

Tilkynna umráðamann ökutækis

Tilkynna breytta skráningu umráðamanns ökutækis

Eigandi ökutækis getur skráð umráðamann, bætt honum við eða fellt hann niður rafrænt. Umráðamenn þurfa ekki að hafa náð 18 ára aldri.

Hlutverk og skyldur umráðamanna

Umráðamaður er sá aðili sem hefur ökutæki til umráða en er ekki skráður eigandi þess. Eigandi ber ábyrgð á greiðslu opinberra gjalda en ef eigandi er fjármögnunarfyrirtæki þá er greiðsluseðill sendur á umráðamann.

Ferlið

  1. Eigandi fyllir út tilkynninguna og greiðir fyrir skráningu.

  2. Ef verið er að bæta við umráðamanni þarf hann að undirrita tilkynninguna rafrænt. Undirritun er hins vegar ekki nauðsynleg þegar umráðamaður er felldur niður.

  3. Skráning umráðamanns er uppfærð í ökutækjaskrá.

Skilyrði fyrir skráningu umráðamanns er að öll opinber gjöld hafi verið greidd.

Kostnaður

  • Skráning umráðamanns 1.265 krónur

  • Niðurfelling umráðamanns 1.265 krónur

Tilkynna breytta skráningu umráðamanns ökutækis

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa